Það er orðið ósköp tómlegt heima hjá okkur núna, tókum niður allt jólaskrautið í gær þegar Ástrós Mirra var ekki heima svo hún fengi ekki söknunartilfinningu.
Hún var mjög brött yfir þessu þegar við komum heim og sagði að svona yrði þetta að vera þegar maður væri að flytja.
Það eru allir veggir tómir og allar hillur en kassar úti um allt á móti. Við erum að vona að þetta gangi allt upp með dags. 5. janúar. Samningurinn okkar segir reyndar 10. jan. en þau voru búin að tala um að afhenda okkur fyrr því þau yrðu svo upptekin þarna viku seinna (þau = hjónin sem eru að selja okkur).
Ég er farin að hlakka mjög mikið til að flytja og sé allt jákvætt við þetta, skólinn, hverfið með allar gönguleiðirnar og stutt í náttúruna ofl. Reyndar lengra niðrá bryggju en þá verður bara skemmtilegra að skreppa þangað af og til og mynda.
Svo er þarna Ástjörnin og fjallið þar á bakvið sem maður á eftir að skoða hvar við lendum ef við löbbum uppá það og niður hinum megin osfrv.
En alla vega smá áramótakveðja frá kassafólkinu
Þangað til næst
Kristín Jóna