Jæja þá er komið bréf frá Dómsmálaráðuneytinu (reyndar afrit af bréfi) þar sem þeir biðja barnaverndarnefnd Hafnarfjarðarbæjar að meta aðstæður hjá okkur miðað við að ættleiða barn frá Kína. Það eru víst strangari reglur þar svo það þarf að miða rannsóknina við það. Rannsóknina ;( en þetta er það í rauninni.
Nú bíðum við eftir að fá fund með félagsráðgjafa en ætlum samt ekkert að bíða því ég held ég hringi bara strax á morgun og panti sjálf tíma, því ég myndi vilja fá fyrsta viðtalið áður en við förum út.
So far so good.
ykkar Kristín Jóna