Við hjónin fórum á bílasýninguna í Fífunni í dag og þar voru nokkrir æðislegir bílar eins og þessi.
Þvílíkt fallegar línur og liturinn alveg geðveikur. Þeir voru að setja nokkra þarna í gang og ég fann sko alveg fyrir gamla fílingnum þegar ég heyri í svona krafti. Man ennþá tilfinninguna þegar við settum Willisinn í gang í denn og 8 cylindrarnir og 360 hestar væru tilbúinir að taka á sprett. Geðveikt. Samt langar mig ekkert endilega að fara hratt, bara finna kraftinn.
Hér er búið að vera að mála um helgina, forstofuna og svefnherbergisganginn. Æðislegur munur þegar það er búið, þá er bara stofan og eldhúsið næst og svo endum við á baðinu og aukaherberginu en þá er líka allt tilbúið