Fyrsta viðtalið

Jæja þá er komið að því að fara í fyrsta viðtalið hjá félagsráðgjafa á morgun 14. sept. en þá eru liðnir 2 mánuðir síðan við fengum bréfið frá ráðuneytinu þar sem þeir biðja Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar að fara yfir okkar mál með tilliti til ættleiðingar.  Þessari vinnu á að vera lokið fyrir 1. október nk. þannig að það er eins gott að þeir hafi hraðar hendur eða þá að við þurfum kannski bara svona fá og stutt viðtöl, vonandi.

Svo förum við 20. – 21. október og 11. nóvember á undirbúningsnámskeið fyrir ættleiðingu og er það haldið uppí Hvalfirði á hótel Glym hjá henni Hansínu frænku minni.  Okkur finnst það mjög spennandi, þarna verður farið yfir ýmsa praktíska hluti varðandi það að ættleiða barn frá fjarlægu landi.  Hvað það þýðir í raun í veru og hvort maður sé tilbúinn til þess.

Þangað til næst,
ykkar Kristín Jóna

kjona

Related Posts

Blómin í hjólbörunum

Blómin í hjólbörunum

Hetjurnar mínar!

Hetjurnar mínar!

Gervigreindin

Gervigreindin

Þrjóska

Þrjóska

No Comment

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

flokkar

nýjar fréttir

komment

Um mig

Ég heiti Kristin Jona og er frá  Vestmannaeyjum. En  bý núna í Marnardal í Suður-Noregi og hef búið hér síðustu tólf árin. Ég hugsa alltaf um Ísland sem heimilið mitt, en ég elska líka að búa hér í Noregi.

Ég hef bloggað síðan árið 2003 svo ef einhvern langar að kíkja aftur í tímann þá er það hægt hérna.

Ég ákvað svo nýlega að bæta ljósmyndablogginu mínu við á þessa síðu svo hægt væri að sjá það samhliða vengjulegu bloggi og mataruppskriftum.