6 stk. | eggjarauður |
6 msk. | sykur |
150 g | púðursykur |
7 dl | rjómi |
3 tsk. | vanillusykur |
200 g | uppáhalds Freia súkkulaðið |
súkkulaðiíssósa |
- Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.
- Blandið púðursykrinum saman við með sleif.
- Þeytið rjómann.
- Blandið honum saman við eggjarauðublönduna með sleif.
- Bætið vanillusykri saman við ásamt súkkulaðinu og hrærið saman.
- Fyrir þá sem vilja nýta eggjahvíturnar í eitthvað annað er um að gera að skella í t.d. marengs. Sú uppskrift kemur hérna fyrir neðan.
- Hellið ísblöndunni í kökuform eða ílát sem þolir frost.
- Hellið súkkulaðiíssósunni yfir ísinn.
- Frystið í að lágmarki 5 klst.
Marengskökur letingjans
- 4 eggjahvítur
- Einn bolli sykur eða einn bolli púðursykur
- Sjá tillögur að viðbótarhráefni hér að ofan
Aðferð:
- Ofn hitaður í 150 gráður.
- Eggjahvítur og sykur þeytt saman þar til stíft.
- Viðbótarhráefni hrært varlega saman við.
- Bökunarpappír settur á bökunarplötu og deigið sett á með skeið í raðir með góðu millibili.
- Bakað í 15-20 mín. eftir stærð toppanna.