I’m in love

I’m in love .. og ekki bara af manninum mínum (er samt alltaf In love with him) en nú er ég ástfangin af Dodda litla, hann er hreinlega bara æðislegur.  Ef ykkur vantar skutl þá hóið bara í mig og Dodda við reddum því og njótum þess.

Sko hann er ekki bara flottur í útliti heldur er svo mjúkur og yfirvegaður.  Hann dekrar svo við mann að það hálfa væri nóg.  Hann er líka mjög notalegur og svo passar hann vel uppá öryggið.  Þetta gæti ekki verið betra.

Vona bara að Þráinn verði ekki afbrýðisamur, hann er það nú venjulega ekki en nú er aldrei að vita og þá meina ég ekki að hann verði afbrýðisamur út í Dodda heldur út í mig fyrir að fá að vera með Dodda alla virka daga en hann aðeins um helgar en maður fer nú ekki í vinnugalla út með Dodda það gengur ekki hann er alltof fínn með sig til að það gangi.  (Ég heppin).

Þá er bara eitt sem vantar núna, ný sólgleraugu í stíl við Dodda.

Þangað til næst,
ykkar Kristín Jóna

kjona

Related Posts

Blómin í hjólbörunum

Blómin í hjólbörunum

Hetjurnar mínar!

Hetjurnar mínar!

Gervigreindin

Gervigreindin

Þrjóska

Þrjóska

No Comment

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

flokkar

nýjar fréttir

komment

Um mig

Ég heiti Kristin Jona og er frá  Vestmannaeyjum. En  bý núna í Marnardal í Suður-Noregi og hef búið hér síðustu tólf árin. Ég hugsa alltaf um Ísland sem heimilið mitt, en ég elska líka að búa hér í Noregi.

Ég hef bloggað síðan árið 2003 svo ef einhvern langar að kíkja aftur í tímann þá er það hægt hérna.

Ég ákvað svo nýlega að bæta ljósmyndablogginu mínu við á þessa síðu svo hægt væri að sjá það samhliða vengjulegu bloggi og mataruppskriftum.