Ekkert svo lítið að gerast lengur…

1.10.2007

Jæja það er ekki svo lítið að gerast lengur.  Mikið búið að vera að gera í vinnunni, hjálpa ömmu að flytja um síðustu helgi sem endaði þannig að amma var flutt á bráðamóttökuna, hún var þó bara inni í einn sólarhring, svaf svo í nýju íbúðinni og lenti svo aftur uppá spítala í dag og liggur á hjartadeildinni núna.
Nú biðjum við til Guðs að þetta sé bara vegna mikils álags á hana undanfarið og að hún jafni sig fljótt og vel.

Það kom einn að skoða í dag og annar ætlaði að koma í kvöld en það klikkaði eitthvað.  Við skoðuðum tvær íbúðir og erum alveg steinhissa hvað allt er eitthvað sjabbí og úr sér gengið sem fólk býr við.  Önnur íbúðin var í Breiðvanginum og blokkin er hreinlega ógeð, skrítið fólk sem labbaði þarna inn og allt eftir því.  Móða á milli glerja á öllum herbergjum osfrv.
Þetta var skárri íbúðin.  Hin var hreinlega hreisi, Þráinn sagði að eldhúsinnréttingin væri verri en á verkstæðum og svo allt hitt eftir því.  Þar var leigjandi sem sýndi og hún sagði að það væri svo hljóðbært og þar sem íbúðin væri á miðhæð þá heyrði hún hreinlega allt bæði fyrir ofan og neðan.  Fólk væri mikið úti á svölum að reykja og það heyrðist náttúrulega inn og svo væru oft partý í húsinu.  Það lá við að við hlypum út og heim og tækjum okkar af sölu.
En núna held ég að við ætlum að fara að skoða á Völlunum þar eru blokkirnar alla vega ekki að hrynja úr elli og slæmri smíði og allt nýtt í íbúðunum.  Skildi vera hægt að kaupa heila blokk og flytja fólkið í okkar blokk með okkur?

Alla vega meira að gera en síðast og já síðast en ekki síst, ljósmyndaklúbburinn gengur vel, þemað núna er BÖRN í tilefni þess að Auður sem vinnur með mér varð amma á laugardaginn, til hamingju með prinsessuna Auður og Snorri.  Og ég ætla að vera í fríi á miðvikudaginn og fara með bekknum hennar ÁM til Þingvalla, jibbý.  Þemað er Börn og ég fer með 23 börn á Þingvelli, hlýt að fá góðar myndir þar.

Þangað til næst,
Kristín Jóna

kjona

Related Posts

Blómin í hjólbörunum

Blómin í hjólbörunum

Hetjurnar mínar!

Hetjurnar mínar!

Gervigreindin

Gervigreindin

Þrjóska

Þrjóska

No Comment

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

flokkar

nýjar fréttir

komment

Um mig

Ég heiti Kristin Jona og er frá  Vestmannaeyjum. En  bý núna í Marnardal í Suður-Noregi og hef búið hér síðustu tólf árin. Ég hugsa alltaf um Ísland sem heimilið mitt, en ég elska líka að búa hér í Noregi.

Ég hef bloggað síðan árið 2003 svo ef einhvern langar að kíkja aftur í tímann þá er það hægt hérna.

Ég ákvað svo nýlega að bæta ljósmyndablogginu mínu við á þessa síðu svo hægt væri að sjá það samhliða vengjulegu bloggi og mataruppskriftum.