Lestarferð í gamla tímanum

Já við skelltum okkur bara í lestarferð með Setesdalsbanen á sunnudaginn og mamma dreif sig bara með.  Hún hélt þetta yrði eitthvað of erfitt en það var allt í lagi þetta ferðalag og ég skemmti mér konunglega en mér finnst þetta dásamleg upplifun.  Svo ljúft og gott að fara svona aftur í tímann og upplifa eitthvað skemmtilegt.

Þar sem lestin getur ekki snúið við á teinunum er fremsta vagninum snúið við eða sko hann getur verið á hvorn veginn sem er.  Hérna er verið að færa hann að lestarvögnunum sem hann mun draga.

Ríkharður vildi endilega fá mynd af sér þar sem hann léti sem hann héldi á lestinni, við vorum kannski ekki alveg með nákvæmnina þarna með okkur.

Meira að segja miðarnir eru eldgamaldags.

Svo eru leiktæki þarna á brautarstöðinni í hefðbundnum gamaldagsstíl og prófuðu strákarnir stulturnar og gekk bara nokkuð vel.

Við byrjuðum lestarferðina í Grovane.

Mamma tilbúin í lestarferð.

Og allir hinir líka.

Og svo eru miðarnir gataðir svo vitað sé að búið sé að nota þá.

Útsýnið á leiðinni er flott.

Það kom kannski aðeins of mikill reykur þarna úr lestinni og ég fékk bara litla kolamola í augun þegar ég rak hausinn út um lestargluggann.

Ríkharður Davíð kíkir á frænku sína út um gluggann.

Svo stoppuðum við við þessa lest, veit ekki alveg hvað gekk á en ég fékk allt í einu  þá tilfinningu að þessi lestarvagn væri fullur af munaðarleysingjum og við þyrftum að taka þeirra vagn í tog. En auðvitað ekki enda er þetta ekki alvöru ævintýri þó mér líði alltaf eins og í skáldsögu.

Svo komum við á hina lestarstöðina og þá þurfti auðvitað að taka mynd.

og aðra

og enn aðra……

Þarna losaði lestin vatn eða tók vatn sá alla vega vatn renna þarna.  Kannski ég verði bara lestarstjóri þegar ég er orðin stór og læri meira um þetta.

Og eitthvað þurfti að huga að teinunum líka.

Svo er bara allt að verða klárt til baka og lestarþjónarnir að fylgjast með að allt gangi upp.

Og hér er hringt í gsm síma en ekki með einni stuttri og einni langri eins og mig hefði grunað ha ha ha.

Og Ríkharður Davíð horfir út um gluggann og nýtur ferðarinnar.

Og þetta kríli varð að kíkja á okkur smá.

Stundum er ansi þröngt við klettana þegar lestir fer framhjá.

Jæja eftir lestarferðina fann mamma draumabílinn.

Frábær lestarferð að baki og framundan út að borða á Mother India þar sem við fengum æðislegan mat og nutum vel.  Síðan heim og þá var dagur að kvöldi kominn.

Þangað til næst,
ykkar Kristin á Nesan.

kjona

Related Posts

Blómin í hjólbörunum

Blómin í hjólbörunum

Hetjurnar mínar!

Hetjurnar mínar!

Gervigreindin

Gervigreindin

Þrjóska

Þrjóska

No Comment

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

flokkar

nýjar fréttir

komment

Um mig

Ég heiti Kristin Jona og er frá  Vestmannaeyjum. En  bý núna í Marnardal í Suður-Noregi og hef búið hér síðustu tólf árin. Ég hugsa alltaf um Ísland sem heimilið mitt, en ég elska líka að búa hér í Noregi.

Ég hef bloggað síðan árið 2003 svo ef einhvern langar að kíkja aftur í tímann þá er það hægt hérna.

Ég ákvað svo nýlega að bæta ljósmyndablogginu mínu við á þessa síðu svo hægt væri að sjá það samhliða vengjulegu bloggi og mataruppskriftum.