Jólaeftirrétturinn okkar!
Botn: 1 egg
4 msk sykur
2 msk hveiti
1/2 tsk lyftiduft
Hitið ofninn í 250°
smyrjið kringlótt tertuform 24 cm
Þeytið egg og sykur saman. Bætið hveitinu útí ásamt lyftiduftinu. Hellið í formið og bakið í 5. mín hvolfið botninum á fat og leyfið að kólna.
Fylling: Niðursoðnar perur stór dós
1/2 liter ís
Skreyting: 4 eggjahvítur
1 dl sykur
2 msk möndluspænir
Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum útí smám saman. Þeytið áfram þar til massinn er orðinn stinnur.
Setjið bakaða botninn á eldfast fat. Hellið safanum af perunum yfir botninn og raðið svo perunum þar ofaná.
Setjið svo ísinn yfir þar og hellið marengs massanum þar yfir.
Bakað í ofni með bara yfirhita í 5 mín eða þar til marengsinn hefur tekið gylltan lit.
Berið fram strax.