Ekki virðist sumarið ætla að koma. Ég var að tala við eina konu sem ætlar í frí í september og við vorum sammála um að sumarið verði kannski komið þá.
En sem betur fer ætlum við ekki að bíða svo lengi því í dag er akkúrat vika þangað til förum til Tenerife en þar verður bara sól, hiti, strönd, sundlaugar, dýragarðar og skemmtigarðar og ég veit ekki hvað, þannig að fram að því ætlum við að reyna að brosa en það er reyndar erfitt td. eins og núna þá er mér ískalt á höndunum því ég er ekki í peysu (inni hjá mér í júlí) hef aldrei vitað annað eins.
En svo er það Rockstar í kvöld, hlakka til að sjá hvernig Magna gengur og vonandi dettur hann ekki út strax, þetta er svo spennandi fyrir hann og okkur íslendinga. Áfram Magni og áfram Sól (hvar sem þú ert)
Þangað til næst,
ykkar Kristín Jóna