9.1.2007
Við mæðgur vorum að kúra okkur saman í gærkveldi þegar Ástrós Mirra lítur á mig og segir: “Ég er svo fegin að eiga þig fyrir mömmu.” Svo er þögn í smástund og þá spyr hún: “Hver gaf þér eggið?”
Ég svara því og hún verður hugsi augnablik og segir svo: “Ég er svo fegin að eiga þig fyrir mömmu”.
Ekki amalegt að fá svona knús og elsku.
Þangað til næst,
ykkar Kristín Jóna