að þeysast um og finna vindinn í hárinu…

06.03.2016

Sveitarfélagið sem ég bý í núna, Marnardalur er að auglýsa eftir sjálfboðaliðum til að koma og hjóla með gamla fólkið í bænum.  Þeir skaffa reiðhjólin, hjálmana og vestin og það eina sem þú þarft að gera er að mæta og hjóla um með gamla fólkið.  Ástæðan fyrir þessari þjónustu er að þau hjá sveitarfélaginu vilja gefa öllum í bænum tækifæri til að fara út og þeysast um og finna vindinn í hárinu.

Ég fór alvarlega að hugsa um að bjóða Þráin fram í svona sjálfboðaliðastarf, því hann er líka svo skemmtilegur að þetta yrði þvílíkt upplifelsi fyrir gamla fólkið.

Nei mér datt ekki í hug að bjóða mig sjálfa fram, enda er það svo oft svoleiðis hjá mér þe. ég rekst á eitthvað sniðugt fyrir aðra að gera ha ha ha.

En hér sjáið þið krúttlegustu auglýsingu ever, ég ætla að vona að svona verði líka í boði þegar ég verð gömul.  Ég er líka viss um að hún amma mín, já eða bara hún mamma mín myndi njóta þess að fara út að hjóla.

 

Eigið dásamlegan sunnudag eða eins og við segjum hér í Norge, ha en strålende dag videre,
ykkar Kristin á Nesan

kjona

Related Posts

Blómin í hjólbörunum

Blómin í hjólbörunum

Hetjurnar mínar!

Hetjurnar mínar!

Gervigreindin

Gervigreindin

Þrjóska

Þrjóska

No Comment

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

flokkar

nýjar fréttir

komment

Um mig

Ég heiti Kristin Jona og er frá  Vestmannaeyjum. En  bý núna í Marnardal í Suður-Noregi og hef búið hér síðustu tólf árin. Ég hugsa alltaf um Ísland sem heimilið mitt, en ég elska líka að búa hér í Noregi.

Ég hef bloggað síðan árið 2003 svo ef einhvern langar að kíkja aftur í tímann þá er það hægt hérna.

Ég ákvað svo nýlega að bæta ljósmyndablogginu mínu við á þessa síðu svo hægt væri að sjá það samhliða vengjulegu bloggi og mataruppskriftum.