Innihald
4 skammtar
800 g | ýsa skorin í bita (7-800 g) |
3 | paprikur, skornar smátt (2-3) |
1⁄2 | blaðlaukur, smátt skorinn |
250 ml | rjómi frá Gott í matinn |
1⁄2 | askja smurostur með papriku |
1 | Dala camembert, skorinn í bita |
1 tsk. | dijon sinnep |
1 tsk. | paprikukrydd |
1⁄2 | grænmetisteningur |
rifinn gratínostur frá Gott í matinn, góð handfylli |
Skref1
- Hitið ofn í 180 gráður.
- Skerið ýsuna í bita og saltið aðeins,.
- Leggið í smurt eldfast mót.
Skref2
- Skerið grænmetið og setjið til hliðar.
Skref3
- Bræðið saman í potti rjómann, smurostinn og helminginn af camembert ostinum, ásamt dijon sinnepi, paprikukryddi og grænmetisteningi.
- Smakkið til með svörtum pipar.
- Hellið sósunni yfir fiskinn.
Skref4
- Dreifið grænmetinu því næst yfir og toppið með rifnum osti og restinni af camembert ostinum, skornum í litla teninga.
Skref5
- Bakið í um það bil 20 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn og osturinn gullinbrúnn.
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir