Fish and Chips frá Gulur, rauður, grænn og salt

Fish and Chips frá Gulur, rauður, grænn og salt

Fiskur og franskar eru hinn fullkomni réttur þegar þið viljið reyna að vinna upp fiskneysluna án þess að missa ykkur i hollustunni. Fiskurinn er stökkur og ferskur með nýkreystri sítrónu og hér toppaður með dásamlegri sósu sem er einföld í gerð og heimagerðum frönskum.  Réttur sem er bestur í góðum félagsskap og ekki verra ef honum er skolað niður í einum öl.

Fish and Chips
Franskar
4 stórar bökunarkartöflur
4 msk olía
salt og pipar

Fiskur
2 stór þorskflök
250 ml bjór/pilsner
200 g hveiti
½ tsk lyftiduft
sjávarsalt og pipar
1 l steikingarolía

Jógúrtsósa
1 dl majones
1 dl hrein jógúrt
2 msk kapers, saxaður smátt
1 tsk dijonsinnep
safi úr hálfri sítrónu
fersk steinselja, söxuð smátt
salt og pipar

  1. Skrælið kartöflurnar og skerið í franskar. Setjið í poka ásamt 4 msk olíu og sjávarsalti og hristið saman. Setjið á bökunarplötu með smjörpappír inn í 220 gráður heitan ofn með blæstri. Hafið þær inni í 30-45 mínútur og hrærið reglulega í þeim og fylgist með því að þær brenni ekki.
  2. Blandið hveiti saman við lyftiduft og kryddið vel með salti og pipar. Hærið bjór saman við þar til deigið er orðið lint og fljótandi. Látið það standa í um 30 mínútur.  Skerið á meðan fiskinn í stykki og blandið sósuna.
  3. Hitið olíu þar til hún er farin að sjóða og látið þá fiskstykki út í og látið sjóða þar til þau hafa fengið fallega gullin lit og eru orðin stökk. Takið þau þá úr olíunni t.d. með gataspaða. Stráið með sjávarsalti og látið fiskbitana á eldhúspappír í smá stund.
  4. Hrærið öllum hráefnunum saman, smakkið til og bætið við hráefnum eftir þörfum.

Berið réttinn strax fram með frönskum, jógúrtsósu og sítrónubátum.

kjona

Related Posts

Heimagerður rjómaís

Heimagerður rjómaís

Chili lax með pasta carbonara

Chili lax með pasta carbonara

Kjúklinga- og grænmetisborgari

Kjúklinga- og grænmetisborgari

Nýja ósæta rúgbrauðið mitt

Nýja ósæta rúgbrauðið mitt

No Comment

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

flokkar

nýjar fréttir

komment

Um mig

Ég heiti Kristin Jona og er frá  Vestmannaeyjum. En  bý núna í Marnardal í Suður-Noregi og hef búið hér síðustu tólf árin. Ég hugsa alltaf um Ísland sem heimilið mitt, en ég elska líka að búa hér í Noregi.

Ég hef bloggað síðan árið 2003 svo ef einhvern langar að kíkja aftur í tímann þá er það hægt hérna.

Ég ákvað svo nýlega að bæta ljósmyndablogginu mínu við á þessa síðu svo hægt væri að sjá það samhliða vengjulegu bloggi og mataruppskriftum.