
Innihald
12 skammtar
Svampbotn:
| 3 | egg |
| 100 g | sykur |
| 45 g | hveiti |
| 45 g | kartöflumjöl |
| 1 1⁄2 tsk. | lyftiduft |
Sigtið saman hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft og bætið varlega saman við.
Smyrjið um 22 cm smelluform vel og setjið bökunarpappír í botninn, bakið við 175°C í um 12-15 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út.
Marengs:
| 4 | eggjahvítur |
| 190 g | sykur |
Teiknið um 20 cm hring á bökunarpappír og dreifið jafnt úr marengsblöndunni.
Bakið við 100°C í tvær klukkustundir.
Súkkulaðifylling:
| 4 | eggjarauður |
| 5 msk. | flórsykur |
| 100 g | suðusúkkulaði |
| 3 1⁄2 dl | rjómi frá Gott í matinn |
Bræðið súkkulaðið, leyfið hitanum að rjúka úr í nokkrar mínútur og blandið því næst varlega saman við eggjablönduna.
Þeytið rjómann og vefjið honum saman við súkkulaðiblönduna með sleif.
Rjómi og skraut:
| 500 ml | rjómi frá Gott í matinn |
| 50 g | suðusúkkulaði |
Samsetning
- Fyrst fer svampbotninn á kökudisk.
- Næst helmingur af þeytta rjómanum og ofan á hann helmingur af súkkulaðifyllingunni.
- Marengsinn kemur þá á milli og svo aftur restin af rjómanum og súkkulaðifyllingunni.
- Að lokum má strá brædda suðusúkkulaðinu ofan á súkkulaðikremið.
- Kælið kökuna vel. Best er hún ef hún fær að vera yfir nótt í kæli.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir