Alltaf einhverjar góðar fréttir! Félagsmálaráðherrann hefur tilkynnt að ríkið muni (það á þó eftir að samþykkja það) styrkja fólk sem ætlar að ættleiða börn um tæpar fimmhundruðþúsundkrónur sem er þá svipað og gert er á öðrum norðurlöndum.
Frábært. Það munar um minna. Þannig að þetta mun dekka 1/3 af kostnaði við ættleiðinguna.
Annars er bara allt rólegt hjá okkur, við erum ekki farin að redda pappírum til að senda út, því við ákváðum að einbeita okkur að 6 ára stelpunni núna og klára afmælið hennar og fara svo á fullt að redda hinu.
Annað sem ég næstum gleymi að nefna er að við fengum bréf frá Dómsmálaráðuneytinu í dag og við erum komin með forsamþykki fyrir ættleiðingunni. Það þýðir að íslensk stjórnvöld telja okkur hæf að ættleiða barn og ala upp.
Ekki amarlegt það. Fyrsti stimpillinn kominn á ennið á okkur.
Þangað til næst,
ykkar Kristín Jóna