Jæja góðar ættleiðingarfréttir.
Kínverjarnir eru búnir að skoða allar umsóknir til 31.12.2006. Þannig að hópur 23 er kominn í gegnum ‘The review room, en það er greinilega herbergi sem við erum geymd í þar til búið er að fara yfir umsóknirnar okkar.
Okkar umsókn er dags. 27. mars 2007 þannig að við ættum kannski að komast í gegnum þetta svokallaða review room fyrir haustið. Jibbý, þá er bara eitt skref eftir þegar það er komið og það er að fá tilkynningu um barn
Þó það líði ár áður en sú tilkynning kemur þá er alltaf gott að komast skref áfram þó lítið sé.
Úff, fékk bara smá gleðihroll við að lesa þetta. Hlakka til að fá aðra svona!