Flatkökurnar hennar Sesselju langömmu…

19.08.2015

Ég var að fá uppskrift af flatökunum hennar Laufeyjar ömmu og prófaði að baka þær í dag og YES þær eru svo góðar og svo komst ég að því að þessa uppskrift erfði amma frá Sesselju mömmu sinni og því er hún að fara í 4 legg núna og fljótlega í þann 5 ef við geymum hana vel.

Flatkökurnar hennar Sesselju langömmu

5 bollar hveiti 

1 bolli rúgmjöl 

1/2 tsk matararsóti

2 tsk salt 

1 mats sykur 

Soðið vatn  5 dl 

Ölum þurrefnunum blandað saman, sjóðandi vatni ( ég nota hanska) helt saman við og hnoðað vertu eins fljót og þú getur að hnoða annars verða þær seigar. Þú verður að giska á vatnsmagnið og skiptir svo deginu í kúlur og fletur út ekki of þunnar.  Muna að  stinga svo með gafli í kökurnar meðan þú bakar þær.  Best að baka á hellu úti eða nota gamaldags pönnukökupönnu úr stáli.

Ég nota gamla stálpönnukökupönnu á hellunni úti, sumir setja beint á helluna en mér finnst þetta snyrtilegra og sé engan mun á kökunum.

Þessi stafli er 3föld uppskrift en ég geri deigið 3svar, margfalda ekki uppskriftina í byrjun og geri eitt stórt deig, held það sé ástæða fyrir því að langamma gerði það svoleiðis.

Hér sjáiði höfund þessarar uppskriftar, hún Sesselja langamma mín í Þorlákshöfn, áður Stokkseyri.  Það var alltaf flatkökulykt af henni langömmu minni og flatkökur minna mig á hana.

Ha en strålende dag videre,

Kristin Jona

kjona

Related Posts

Heimagerður rjómaís

Heimagerður rjómaís

Chili lax með pasta carbonara

Chili lax með pasta carbonara

Kjúklinga- og grænmetisborgari

Kjúklinga- og grænmetisborgari

Nýja ósæta rúgbrauðið mitt

Nýja ósæta rúgbrauðið mitt

No Comment

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

flokkar

nýjar fréttir

komment

Um mig

Ég heiti Kristin Jona og er frá  Vestmannaeyjum. En  bý núna í Marnardal í Suður-Noregi og hef búið hér síðustu tólf árin. Ég hugsa alltaf um Ísland sem heimilið mitt, en ég elska líka að búa hér í Noregi.

Ég hef bloggað síðan árið 2003 svo ef einhvern langar að kíkja aftur í tímann þá er það hægt hérna.

Ég ákvað svo nýlega að bæta ljósmyndablogginu mínu við á þessa síðu svo hægt væri að sjá það samhliða vengjulegu bloggi og mataruppskriftum.